Hversdagsrúnk

Hversdagsrúnk

17.01.2007 17:12:26 / Ómar Diegó

Fluttur annað

Ég er fluttur yfir á síðuná

www.omardiego.klauvi.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 10:01:34 / Ómar Diegó

Akstur og gúbbífiskaminni

Akstursaðstæður eru ekki alltaf upp á sitt besta á þessu blessaða landi, og það er ekki að gerast í fyrsta skipti að það er vindur, skafrenningur eða hálka úti.  En það er alltaf eins og íslendingar gleymi því 5 sekúntum seinna að léleg dekk og eða sumardekk í hálku þýðir 

1. umferðaslys  

2. pikkfastur bill í snjó

3.pikkfastur bíll á jafnsléttu

sem þýðir

1. fólk bíður í "skemmtilega" einn til tvo tíma í umferð á leiðinni í vinnuna 

2. þegar fólk bíður í "skemmtilega" einn til tvo tíma í umferð verður það autómatískt pirrað og leiðinlegt og afköst í vinnu, skóla verða vafasöm!

Gúbbífiskaminni er algengur kvilli sem íslendingar eiga við að etja, þetta er sjúkdómur sem virðist vera meðfæddur og ekkert hægt að gera í! þar með hef ég afsannað að fólk fæðist Tabula rasa (ísl. þýðing. fæðist sem autt blað þ.e öll reynsla og hegðun er áunnin) ég ætti að verða vísindamaður hehehe

ást og virðing

Ómar Diegó


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 16:47:32 / Ómar Diegó

Afhjúpun á lygi Byrgisins

jæja núna er komin út úttektarskýrsla ríkisendurskoðunar á fjármálum Byrgisins og eins og allir vissu þá eru vankantar á bókhaldi byrgisins,í alvöru? ég er sjokkeraður, sjokkeraður.

Mér finnst ákaflega fyndið að pervertismi forstöðumannsins kom þessu öllu af stað ekki almennt tjékk ríkisins á bókhaldi Byrgisins. Maður hefði nú haldið að almennt tjékk á fjárútlátum ríkisins til stofnana væri sjálfsagt.  Eins og fram kemur í skýrslunni þá voru launagreiðslur til starfsmanna Byrgisins 12,7 milljónir en uppgefið í bókhaldinu 5,5!!! smá munur. svo var Byrgið að greiða útgjöld sem er stofnuninni óviðkomandi uppá 12,5 milljónir sem talið er vera einkaneysla starfsmanna, úffff ég finn skítalykt!

Ekki skánar þetta gott fólk heldur á förstöðumaður Byrgisins eignarhaldsfélag sem leigir Byrginu 2 Landrover Discovery 2006 og hver keyrir þá jú forstöðumaður og aðstoðarforstöðumaður Byrgisins. gerður var munnlegur samningur á milli Byrgisins og ríkisendurskoðunar um að rekstur bílanna verði dreginn af launum forstöðumanna en það fannst ekkert bókað um það í skjölum Byrgisins,  þeir eru semsagt að láta byrgið greiða sér fyrir notkun á bílunum og eru SJÁLFIR á þeim!!! mjög gott, mjög gott. ekki má gleyma því að bíll forstöðumanns er endurnýjaður árlega!

til þess að summa þetta aðeins upp þá:

Borgar Guðmundur sjálfum sér fyrir notkun á bílnum SÍNUM!

Hann fær sér nýjan síma á 2 vikna fresti

mér finnst þetta mál allt hið furðulegasta og ríkið ætti að taka þetta svolítið á sig vegna þess að þau eru ekki með neitt eftirlit með fjárútláti sínu! eru þau strax búin að gleyma stóra Árna Johnsen málinu.....APAKETTIR

ást og virðing

Ómar Diegó


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 19:14:40 / Ómar Diegó

RÚV að skíta á sig

Djöfull varð ég reiður nú rétt í þessu!!!  ég er að horfa á fréttir og þá kom eitt innslag um kynferðislega misnotkun á heyrnarlausu fólki.  Það er náttúrulega viðbjóður að misnota fólk kynferðislega en ennþá verra að gera það við fólk sem getur ekki tjáð sig eins og hinir heyrandi.  en það er ekki ástæðan fyrir því að ég er reiður, heldur það að heyrnalaus maður kemur og segir fréttastofu RÚV sögu sína og þau settu skugga á andlitið á honum þannig að hann sjáist ekki, það tókst ekki betur en svo að andlitið sást virkilega vel.  ég hef afgreitt hann í vinnunni það sást svona vel.  Hvað er annars málið afhverju í andskotanum þarf alltaf að sýna þetta fólk???? afhverju er ekki bara sagt frá fréttinni og sleppt þessu, eða blörrað almennilega fyrir andlitið á greyið manninum???? getur einhver svarað því? Djöfull er ég reiður fyrir hönd mannsins

ást og virðing

Ómar Diegó


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 10:59:27 / Ómar Diegó

Lyftingar

Ég er ekki mikill lyftingar gæji, ekki nema bara svona til þess vekja vöðvana aðeins eða vegna þess að sjúkraþjálfarinn minn segir mér að fara að lyfta, og það gerist alloft vegna þess að ég fæddist sem hrökkbrauð. ekkert er eins böggandi og jafnframt fyndið en gæjarnir sem lyfta ekki neitt heldur mæta í móðins íþróttafötum beint úr nýjustu sportlínu NTC keðjunnar og labba bara um ræktina, heilsa fína og "fræga" fólkinu og þykjast þekkja allt og alla.  svo eftir svona hálftíma til klukkutíma taka þeir handlóðin (svona til þess að gera eitthvað) stilla sér upp fyrir framan spegil fara úr flottu tiger sportpeysunni og á Diesel hlýrabolinn og byrja að lyfta af svona líka áfergju að heyrist til kuala lumpur. þegar þeir eru búnir að lyfta svona 10 sinnum og horfa á sig í korter, þá labba þeir að næsta hlaupabretti, tala við hnakkamellu og fara svo. þegar komið er fram þá fá þeir sér einn risastórann skyr sjeik, því þeir tóku svo vel á. APAKETTIR

ást og virðing

Ómar Diegó


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 13:31:18 / Ómar Diegó

Stolen Identity 3

þetta er eitthvað það fyndnasta sem ég hef séð

ást og virðing Ómar Diegó

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 12:52:04 / Ómar Diegó

Bílslys

Það er alveg ótrúlegt hvað það er búið að vera mikið af bílslysum í byrjun árs 2007, mér finnst eins og önnur hver frétt sé um bílslys!

1. Kona keyrði utan í hross og velti bílnum sínum

2. Maður keyrði á 200 km hraða í gegnum hvalfjarðagöngin og vesturlandsveg og það var ekki hægt að taka af honum skýrslu vegna ölvunar ( ÞETTA ER APAKÖTTUR VIKUNNAR)

3. Bíll valt við Þorlákshöfn

4. ekið á gangandi vegfarendur við Garðartorg í Garðabæ (ekið á mann sem hélt á 1.árs syni sínum)

5. 5 slasaðir eftir bílveltu í kjósaskarðsvegi vegna hálku

svona til þess að fólk átti sig á því hvað þetta er mikið!  þann 4.janúar þá voru tuttugu og sex umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á síðasta sólarhring.

fariði varlega

ást og virðing

Ómar Diegó


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 15:03:21 / Ómar Diegó

Ricky Gervais og enski boltinn

ég grenjaði úr hlátri þegar ég sá þetta hérna um árið og rakst á þetta aftur núna

enjoy

ást og virðing

Ómar Diegó


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 11:12:15 / Ómar Diegó

Naflakusk

Ég hef verið að velta fyrir mér afhverju í andskotanum naflakusk myndast!  ég bara get engann veginn áttað mig á því.  korteri eftir að maður er búinn í sturtu og klæða sig í bol, BÚMM naflakusk. mér finnst þetta ekkert betra en flasa í kálinu á fólki...

ást og virðing

Ómar Diegó


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 00:07:19 / Ómar Diegó

Kryddsíld og þingmannaveiki

Ég horfði með öðru auganu á kryddsíldina á gamlarsdag og þar var margt fyndið sem gerðist, eins og við var að búast varð allt brjál útaf innflytjendastefnu frjálslyndaflokksins, eins og venjulega þá var Ingibjörg sólrún að gjamma frammí með sínum leiðinlega hrynjanda og þá sagði Guðjón Arnar Kristjánsson "SLAPPAÐU AF" það var ansi hressandi comment og hann rauk upp í áliti hjá mér! 

svo var það þegar hið svokallaða kaffibandalag áttu orðaskipti um forsætisráðherrastólinn og önnur ráðuneyti...Steingrímur J. Sigfússon sagði að ef stjórnarandstaðan myndi ná að fella ríkisstjórnina þá þyrftu þau að vinna saman og skipta með sér verkum þegar þar að kæmi, þá kom ungfrú hex og sagði "finnst þér ekki að stærsti flokkurinn ætti að fá forsætisráðuneytið"? þá sagði steingrímur að það mætti vel vera ef sá flokkur ynni stórsigur að þá ætti hann líklega rétt á stóli forsætisráðherra! þá gubbaði Ingibjörg út úr sér " þótt hann sé ekki stærstur" (innsk.Ómars Diegó, Ingibjörg mín ef þinn flokkur fær bara 30% fylgi eins og allt lítur út fyrir þá nægir það ekki til þess að fella ríkisstjórn sem er yfirleitt með í kringum 40+%, en ef vinstri grænir eða frjálslyndir vinna stórsigur á sinn mælikvarða, og framsókn fær ekki sína venjulegu kosningu þá verður þú að láta eitthvað eftir! það er á hreinu, því þú vinnur þetta ekki bara á samfylkingunni !)

samt finnst mér það alveg stórskemmtilegt að þau eru byrjuð að ræða skiptingu á ráðuneytum þegar fimm mánuðir eru í kosningar.  Svo finnst mér það ennþá fyndnara að þau klárlega geta ekki unnið saman eins og fólk ætti að vera orðið löngu ljóst núna.  Helvítis Kommúnistapakk!!!!

-----------------------

svo las ég skemmtilegan pistil um þingmannaveiki hjá Stefáni Pálssyni sem mér finnst vera einn skemmtilegasti penninn í bloggheimum þessa stundina

http://kaninka.net/stefan/

hérna er hann að tala um að Ómar Ragnarsson sé kominn með þingmannaveikina, snilld

ást og virðing

Ómar Diegó


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 10:28:28 / Ómar Diegó

Áramótaskaup

Eitt það besta sem ég hef séð!!!!!

ást og virðing

Ómar Diegó


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 01:49:23 / Ómar Diegó

Snillingur

þessi maður er argasti snillingur, klárlega besta leiðin til þess að fá smá bootycall!

Breskur maður hefur auglýst til sölu á Ebay lúxusferð fyrir tvo til Jamaíka og er verðið aðeins brot af upprunalegu verði, eða um 90 þúsund krónur í stað 335 þúsund króna. Sá böggull fylgir þó skammrifi að aðeins konur geta keypt ferðina og þær verða að fara með þeim sem selur hana.

Forsaga málsins er sú að Adam Croot, sem ætlaði að bjóða unnustu sinni í ferðina og biðja hennar þar, var síðan sagt upp fyrir stuttu. En þar sem dvalarstaðurinn leyfir aðeins gagnkynhneigð pör getur hann ekki farið einn eða með karlkyns vini sínum og ákvað því að leita að ferðafélaga á Ebay.

Hann tók þó fram að konurnar sem ætluðu sér að bjóða í ferðina þyrftu að vera einhleypar, þar sem hann vildi gjarnan halda lífi og limum, og ekki of gamlar.

Alls hefur hann fengið um 2.500 heimsóknir á síðuna og er því ljóst að þetta tilboð hans hefur vakið töluverða athygli. Á síðunni má meðal annars sjá myndir af Adam sem og umsagnir um væntanlegan dvalarstað.

ást og virðing

Ómar Diegó


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 23:23:24 / Ómar Diegó

SMS

ég horfði á fréttirnar um daginn og þar mætir maður í viðtal sem er framkvæmdarstjóri Dominos.  Hann var svo rauður í framan vegna þess að fólk hafði verið að hringja í tugatali í Dominos vegna þess að það var alveg brjálað yfir því að fyrirtækið hafi dirfst til þess að senda þeim jólakveðjur á aðfangadag jóla.  ég veit ekki með þetta fólk, það er ekki eins og Dominos hafi verið að senda þeim tilboðs sms á fokking pízzum.  bara að óska þér og þínum gleðilegra jóla!  Að framkvæmdarstjóri Dominos og Vodafone hafi þurft að biðjast afsökunnar á því að sms-in hafi ekki farið í gegn á sekúndunni 1500 finnst mér alger firra. ég er ekki að segja þetta vegna þess að ég vinn hjá síðarnefnda fyrirtækinu!  ég var eitt af "fórnarlömbum" Dominos sms árásarinnar og fannst þetta bara fallega gert af þeim.  finnst gott að fyrirtæki séu ánægð með viðskipti landsmanna við sig.

og svo til þeirra sem finnst þetta vera árás á sitt heilaga jólahald þá eruð þið APAKETTIR upp til hópa!

ást og dominos virðing

Ómar Diegó


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 23:14:15 / Ómar Diegó

Gleðileg Jól elsku vinir

Jæja þá er tími kærleika og friðar að ganga í garð, sem er æðislegur tími en að undanförnum árum þá er þetta búið að breytast yfir í tíma ofáts, efnishyggju og hasiteringar í formi stresskasta, og almenns ruddaskaps. En þrátt fyrir að öll hasiteringin, stressið og almenna frekjan tröllríði landanum allan desember mánuð þá er eins og það hverfi allt að kvöldi Þorláksmessu, þá er eins friður og kærleikur nái að troða sér í gegnum allt, ró kemur yfir landann og hinn sanni jólaandi sést í fyrsta skiptið.  Göngutúrinn niður laugaveginn um miðnætti á degi Þorláks er ímynd jólaandans fyrir mér, ég get ekki beðið eftir að fara í bæinn og fá mér heitt kaffi/kakó eða ískaldann bjór, því eftir það þá er ég kominn í jólaskap og ég vona að þið öll séuð annaðhvort komin í jólaskapið eða á leiðinni í það....

Í lokin vil ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og jafnframt þakka fyrir allar góðu stundirnar á árinu.

ást og jólavirðing

Ómar Diegó

āÚ̋ƈϗǘ̈簰ϯ

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 12:30:09 / Ómar Diegó

Vísa um Guðmund í Byrginu

VIÐ GETUM EI TEKIÐ HANN GUÐMUND Í SÁTT,

ÞÓTT SYNDUM ÖLLUM HANN HAFNI.

ÞVÍ FYRR MÁ NÚ VERA AÐ FÁ SÉR DRÁTT,

Í FRELSARANS JESÚ NAFNI.

höfundur ókunnugur

ást og virðing

Ómar Diegó


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti